Eitthvað bull bara

Já já

26.03.2007 12:33:14 / einaromar

5 ára afmæli

Ég er fimm ára og er að halda upp á afmælið mitt. Það koma fullt af gestum. Allir fá sér heita rétti og fara svo að tala um Silfur Egills og VG og að allt fer til fjandands. Að við eigum allt okkar undir álverum og að við missum húsin okkar ef VG kemst til valda.

Ég er bara 5 og skil þetta ekki ég fer bara að leika mér með dúkuna sem ég fékk í afmælisgjöf sem kúkar og pissar.


» 2 hafa sagt sína skoðun

14.03.2007 13:26:06 / einaromar

Manchester, Reykjavík, Sigló

Á þriðjudag og miðvikudag var ég að horfa á fótbolta leiki með 45,000 - 75,000 manns og svo á föstudag var ég kominn til sigló þar sem 2000 mann búa. Fór á skíði og þetta er bara eins og að hjóla einu sinni prufað þá kann maður þetta, fór á stökkpalla og allt.


» 0 hafa sagt sína skoðun

22.02.2007 16:12:09 / einaromar

Mogginn á mánudag og 11 dagar

Flott mynd í mogganum á mánudag. V, P, E að gera góða hluti sem stuðningsmenn. 

Svo eru 11 dagar í 4 daga fótbolta geðveiki.

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

17.02.2007 12:13:26 / einaromar

Osama Bin Laden

Osama. Ég var að hugsa um hann um daginn. Hvar er kallinn niður kominn, Afganisthan, Írak, Líbanon eða hvar sem er. Svo í gær föstudaginn 16 febrúar 2007 var ég að keyra út auglýsingar í Seljaskóla og Osama Bin var að bíða eftir strætó rétt hjá Hólmaseli. Til að vera alveg 100 % viss þá tókum við 2an hring og já þetta var Osama, vinnufélagi getur staðfest þetta. Vá Osama Bin Laden býr á Ísland þetta er frábært.


» 0 hafa sagt sína skoðun

08.01.2007 10:18:19 / einaromar

Nýtt ár

Enginn nýársheiti hjá mér. Ég nenni ekki í ræktina, reyki ekki og ég er bara nokkuð sáttur við sjálfan mig eins og ég er.  

» 2 hafa sagt sína skoðun

29.12.2006 22:26:12 / einaromar

Flugeldar

Þegar maður verður 25 ára verður maður hræddur við flugelda. Var að halda flugeldasýningu í kvöld í vinnunni ,vá hvað það er skemmtilegt í vinunni. En það var smá vesen ég fann ekki hlífðargleraugu og var því næstum hættur við allt saman. En á endanum steig ég í óttann, og hélt glæsilega sýningu.


» 0 hafa sagt sína skoðun

20.12.2006 16:31:25 / einaromar

Grár og gamall

Já varð 25 ára um daginn og lífið bara búið. Vakanði með grá hár, fékk mér gleraugu og mér er hætt að rísa hold. Er kominn með góða summu í auka lífeyrir og er að spá í að slappa af núna. Fara að spila golf og sleikja sólina á Flórída.


» 1 hafa sagt sína skoðun

13.12.2006 15:24:25 / einaromar

Takk

Leynivinur minn er æði. Hann er búinn að búa til myspace síðu og setur þar inn alls konar dót sem ég hef gaman af. Takk kæri vinur. Og mundu í dag er besti dagur ævi þinnar.
Síðan er www.myspace.com/egerbestur

» 0 hafa sagt sína skoðun

12.12.2006 14:45:48 / einaromar

Leynivinur er ekki að standa sig

Já það er leynivina leikur í gangi í vinnunni og sá sem dró mig er ekki að standa sig. Ég er að standa mig með stakri prýði. Svo eru bara 4 dagar í að ég verði 25. Shit. 

» 2 hafa sagt sína skoðun

04.12.2006 16:19:23 / einaromar

Hélt að ég yrði drepinn í nótt

Sá þátt um daginn á DC þar sem fólk sem er sofandi gerir fáránlega hluti. Myrðir, keyrir, borðar og fullt af rugl hlutum.

Ég lifi við svona aðstæður þar sem rekkjunautur minn gengur og gerir allskonar rugl í svefni.

Hélt að yrði drepinn í nótt.


» 1 hafa sagt sína skoðun

30.11.2006 21:13:39 / einaromar

Mínus 15.000

15000 kr í lækna og lyf á 12 timum. 

» 1 hafa sagt sína skoðun

19.07.2006 22:47:29 / einaromar

Þetta er búið

Ég hef ákveðið að hætta þessu blogg rugli. Er ekki að nenna þessu og hef orðið fyrir aðkasti á götum úti frá fólki sem finnst þetta blogg mitt ömurlegt. Þeim finnst það ófyndið og ófrumlegt og hef ég því ákveðið að hætta þessu.

Ef þú vilt vita hvað er að gerast í mínu lífi hringdu þá.


» 3 hafa sagt sína skoðun

14.07.2006 14:06:04 / einaromar

Grill

Grillað í dag í grenjandi rigningu og roki.


» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 7
F�?�?�?�??�?�?�â�?��?��?�?â�?� �?¢â�??¬â�??¢�?�?�?
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 1803 dögum